HULDUFÓLKSSÖGUR – ORÐSTÖÐULYKILL

Hjálparskrá


Um orðstöðulykilinn

Orðstöðulykillinn sem hér birtist nær yfir 48 íslenskar huldufólkssögur. Flestar sögurnar eru ættaðar úr þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar en margar þeirra hafa birst víðar. Hér er ekki um að ræða neins konar úrval huldufólkssagna heldur handahófskennt sýnishorn, enda réðst val sagnanna mest af því hvað tiltækt var í fljótu bragði í tölvutæku formi.

Lykillinn sýnir hverja orðmynd sem fyrir kemur í sögunum ásamt næstu orðum á undan og eftir en auk þess er hægt að fletta upp í meðfylgjandi texta og skoða þannig stærra samhengi. Þessi orðstöðulykill er ekki lemmaður, þ.e. mismunandi beygingarmyndir eru ekki sameinaðar undir einu uppflettiorði eins og gert er í orðabókum, heldur er hver orðmynd sjálfstæð færsla.


Notkun lykilsins

Gluggi vefsjárinnar skiptist í fjóra afmarkaða ramma. Hægt er að breyta stærð allra rammanna; ef bendillinn er færður á mörkin milli þeirra breytist útlit hans og þá er hægt að færa mörkin að vild með músinni.

Auðvelt er að nota leitarskipun vefsjárinnar (Ctrl+F) til að finna orðmyndir sem koma fyrir í textanum. Leitin verkar á þann ramma sem síðast var smellt á. Einfaldast er að velja „allur listinn“ í orðmyndalistanum og láta forritið leita þar, þaðan er síðan greið leið að orðstöðulyklinum og textanum.


Texti þjóðsagnanna er fenginn frá Netútgáfunni og er í flestum tilvikum tekinn eftir Þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar, Íslenzkar þjóðsögur og ævintýri (2. útg. 1954-61) eða úrvali Sigurðar Nordals, Þjóðsagnabókinni (1971-73).

Þeim sem áhuga hafa á að skoða fleiri þjóðsögur á vefnum er bent á vefsíður Netútgáfunnar.

Orðstöðulykill: © Orðabók Háskólans.
Ábendingar og athugasemdir má senda til Aðalsteins.


Smellið á orðmynd í listanum til vinstri til að fá orðstöðulykilinn aftur.