FRÉTTIR ÚR MORGUNBLAÐINU
– ORÐSTÖÐULYKILL –

Hjálparskrá


Um orðstöðulykilinn

Orðstöðulykillinn sem hér birtist nær yfir 348 fréttatexta sem birtust í Morgunblaðinu árið 1997, alls um 87 000 lesmálsorð. Textarnir eru fengnir úr gagnasafni Morgunblaðsins og voru valdir af handahófi úr þeim efnisflokkum sem hafa að geyma almennar fréttir, þ.e. flokkunum Forsíða , Baksíða , Erlent og Innlent .

Lykillinn sýnir hverja orðmynd sem fyrir kemur í textunum (fyrirsögnum og meginmáli) ásamt næstu orðum á undan og eftir en auk þess er hægt að fletta upp í meðfylgjandi texta og skoða þannig stærra samhengi. Þessi orðstöðulykill er ekki lemmaður, þ.e. mismunandi beygingarmyndir eru ekki sameinaðar undir einu uppflettiorði eins og gert er í orðabókum, heldur er hver orðmynd sjálfstæð færsla.


Notkun lykilsins

Gluggi vefsjárinnar skiptist í fjóra afmarkaða ramma. Hægt er að breyta stærð allra rammanna; ef bendillinn er færður á mörkin milli þeirra breytist útlit hans og þá er hægt að færa mörkin að vild með músinni.

Auðvelt er að nota leitarskipun vefsjárinnar (Ctrl+F) til að finna orðmyndir sem koma fyrir í textanum. Leitin verkar á þann ramma sem síðast var smellt á. Einfaldast er að velja „allur listinn“ í orðmyndalistanum og láta forritið leita þar, þaðan er síðan greið leið að orðstöðulyklinum og textanum.


Textar: © Morgunblaðið
Orðstöðulykill: © Orðabók Háskólans .

Ábendingar og athugasemdir má senda til Aðalsteins .


Smellið á orðmynd í listanum til vinstri til að fá orðstöðulykilinn aftur.